Hugleiðingar

Samkvæmt mínum skilningi

24.12.2009 15:09:55 / ragnhild

Gleðilega hátíð

Við fjölskyldan óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
Þökkum góðar stundir á liðnum árum og fórum hress og kát inn í nýja árið.

Ragnhildur, Hreiðar, Brynjar Leó og Egill Ari.



» 1 hafa sagt sína skoðun

02.11.2009 20:42:19 / ragnhild

Bústaðarferð og Halloween

Átti einstaklega skemmtilega helgi með góðum vinum. 4/5 af gamla stofngengi vinafélagsins Gaursins efndi til sumarbústaðarhittings 10 árum eftir síðasta hitting. Fjórar fjölskyldur komu saman við Þingvallavatn, átta fullorðnir og tíu börn á aldrinum 2-8 ára. Fjölskyldan sem vantaði er af stærðinni 2+2, þannig að í raun er vinafélagið Gaurinn orðinn samtals tíu fullorðnir og tólf börn. En nóg af stærðfræði. 

Helgin var eins og gefur að skilja afar fjörug eins og jafnan verður þegar svo mörg börn eru saman komin á svo litlu svæði. Við fórum í útleiki, í heita pottinn, spiluðum spil, fórum í "fjöru"ferð og borðuðum voðalega mikið. Síðast en ekki síst héldum við Halloween party og allir krakkarnir fengu grasker til að skera út í með hjálp mömmu og pabba. Síðan fóru allir í búninga, það var sögð draugasaga og að lokum var ball. Virkilega skemmtilegt kvöld þó hávaðinn hafi um tíma farið nokkuð langt yfir heilsumörk á þeim skala. 

Fjör í pottinum
Graskerin skorin
Eitt graskerið í fullum skrúða
"Fjöru"ferðin við Þingvallavatn á fallegum sunnudegi
Glæsilegur hópur - ljósmynd: Sævar Helgi

» 1 hafa sagt sína skoðun

28.10.2009 09:16:33 / ragnhild

Ísland só far

... beinst framhald úr síðasta bloggi.

- sváfum úr okkur ferðaþreytuna hjá Hillu í Hafnarfirðinum
- skoðuðum íbúð þegar við vöknuðum og þegar ég skoðaði tölvupóstinn minn sá ég að fyrsta ljósmyndaverkefnið mitt var í höfn
- sendum drengina í Fellabæinn, fastsettum okkur íbúð í Hafnarfirði og fluttum inn með 4 ferðatöskur
- settum fötin inn í skáp, pökkuðum aftur niður og brugðum okkur í ferðalag
- tók fyrsta brúðkaupið mitt með hjálp Hreiðars, hitti ættingja og vini á Norðurlandi
- skelltum okkur svo austur að hitta fleiri ættingja en drengirnir voru síður en svo ánægðir að sjá okkur, en þeir sættust á veru okkar þegar þeir komust að því að þeir máttu vera lengur og við skildum þá eftir á ný
- fórum aftur norður og réðumst á bílskúrinn, fluttum með hjálp góðra manna allt sem hægt var að koma í einn sendibíl, einn pallbíl og kerru.
- hentum draslinu inn og röðuðum kössum hingað og þangað um íbúðina. Gerðum barnaherbergið tilbúið og fengum svo drengina heim með flugi.
- héldum áfram að reyna að koma okkur fyrir og skelltum okkur svo á ættarmót á Reykhólum
- aftur í bæinn og ég kláraði að vinna brúðkaupið og svo var brunað austur á land á ný.
- fór í brúðkaup hjá Dagmar og Ninna, náði flottum myndum og skemmti mér konunglega
- dvöldum í íbúð Sigga bró og drengirnir fengu að sofa í tjaldi, inni!
- heimsóttum mann og annan og nutum þess að vera á Héraði
- átti 10 ára brúðkaupsafmæli og dagurinn fór í að bruna lengri leiðina til Þórshafnar og steinhreinsa ein fimm kíló af vínberjum
- gistum á hinu glæsilega Hótel Jórvík á Þórshöfn með vel útilátnum morgunverði aðeins neðar í götunni
- fórum í skemmtilegt og brúðkaup Grétu og Jóns Arnars og fjörugt hlöðuball. Náði fullt af skemmtilegum römmum.
- brunuðum svo í einum rykk til Reykjavíkur
- fór í atvinnuviðtal
- beið eftir niðurstöðum úr atvinnuviðtali
- vann myndir og við héldum áfram að koma okkur fyrir
- strákarnir byrjuðu í skólanum og eru rosa ánægðir
- ég fékk vinnuna
- mér var boðin önnur vinna sem ég var að hafna
- ég byrjaði í nýju vinnunni og það er svaka stuð
- ég byrjaði í blakinu með mínu gamla liði og það er svaka stuð líka
- drengirnir byrjuðu á sundæfingu, fimleikum, píanókennslu og fótbolta
- hver dagur er vel skipulagður og mikið um skutl alla daga
- allt fór á flot í geymslunni, tvisvar
- búið að laga lekann í geymslunni
- fór á fyrsta blakmótið og það gekk bara sæmilega, urðum í 5.- 6. sæti af 12 liðum
- blakþjálfarinn reynir að láta mig slá fastar og fasta í boltann - mig sárvantar meiri vöðva, hvað segið þið um stera!
- búin að fá flensuna, veit ekki hvort það var svínið!!
- skrapp á Selfoss á árshátíð í nýju vinnunni minni
- búin að fá nokkra næturgesti á nýja heimilið í Hafnarfirðinum og þeir hafa unað sér vel í neðri kojunni hans Egils Ara.
- höldum reglulega súpupartý og pizzapartý sem er voða gaman

Læt þetta duga í bili – aldrei að vita nema ég bloggi annað slagið í vetur, svona þegar andinn kemur yfir mig. Góðar stundir.


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.09.2009 08:42:46 / ragnhild

Síðan síðast

Júní:
- kláraði lokaverkefnið mitt í WAP
- átti frábærar stundir með gestunum frá Íslandi
- hélt upp á afmæli stóru syss
- útskrifaðist með sæmd frá WAP og var að sjálfsögðu hæst
- skilaði af mér íbúðinni góðu á Pheasant Lane
- kvaddi góða vini í Victoria :'(
- héldum af stað í ferðalagið góða yfir Kanada
- byrjuðum í Vancouver og fengum að sjálfsögðu góðar móttökur í Melfa Lane
- héldum sem leið lá yfir Klettafjöllin
- fundum æðislegan flóamarkað og Inga gat keypt sér einn bolla með undirskál, Brynjar fann sér svarthöfðagrímu og Egill Ari keypti sér 35 ára gamalt Andrésblað
- gistum fyrst í Merrit og svo í Golden
- yndislegt ferðalag, vorum á tveimur fólksbílum og enn er mikil ráðgáta hvernig allt dótið komst í þá
- komum svo til Calgary og áttum frábæra kvöldstund með Önnu og vini hennar á æðislegum veitingastað
- flugum til Winnipeg og fengum góðar móttökur frá Rósalind, Einari og Kristrúnu
- komum okkur fyrir í sumarhúsi Kristrúnar við Winnipegvatn
- skoðuðum söfn í Gimli, í Winnipeg og Selkirk, fórum í kvöldverð til Margrétar í Riverton, skoðuðum Hekla Island í mikilli rigningu, fengum flottar móttökur og skemmtilegan dag með barnakórnum í Árborg, keyrðum eftir kassalegum ferhyrningum, hittum fullt af skemmtilegu fólki og marga sem töluðu íslensku, enduðum þetta svo með kvöldverði hjá Konsúlnum.
- flugum til Ottawa með millilendingu í Toronto
- fengum frábærar móttökur frá Jamie frænku og Cliff
- ókum á heimili þeirra í Québec fylki, rétt hjá Pembroke
- fengum flottan kvöldverð og syndum í Ottawa River

Júlí:
- vorum keyrð til Ottawa til að halda upp á þjóðhátíðardag Kanadamanna 1. júlí
- fórum á skoska sýningu og hittum skosk-íslenskt fólk og fleiri
- hittum einnig systur konsúlfrúarinnar
- í Ottawa voru múgur og margmenni og skemmtilegir götulistamenn alls staðar að úr heiminum út um alla borg
- Carl var með skemmtiatriði sem ég reyndar rétt missti af en Cliff, Inga og Úlfar náðu því
- um kvöldið vorum komum við okkur fyrir á Parliament Hill og fylgdumst með dagskránni sem var sjónvarpað um allt landið
- kvöldið endaði að sjálfsögðu með glæsilegri flugeldasýningu
- fórum í skemmtilegan rútuferð daginn eftir og ég reyndi eftir megni að þýða "sightseeing" ræðuna fyrir mömmu og pabba, gekk ekkert allt of vel þegar farið var mikið ofan í alls konar stjórnardæmi og hvaða kall væri þetta og hitt. Og hvað væri í minningu þessa atburðar og hins...
- fórum á flott safn í Ottawa og svo út á borða á frábærum stað, rosa flott hlaðborð og Carl kom líka
- vöknuðum um miðja nótt til að taka lest til Niagara Falls
- þægilegur og skemmtilegur ferðamáti og ferðin tók aðeins 7 tíma og við skiptum um lest í Toronto
- komum okkur fyrir á hótelinu okkar með útsýni yfir fossana
- fórum í gönguferð, tókum myndir og fórum m.a. undir fossana
- pöntuðum okkur pizzu um kvöldið og nutum útsýnisins - fylgdumst svo með flugeldasýningu yfir fossunum
- Jamie og Cliff sóttu okkur svo um hádegi daginn eftir
- við komum við á Vínekru á leið okkar til Torronto
- komum líka við í Costco.... og keyptu tvo flakkara eða svo
- komum okkur fyrir á flugvallarhótelinu í Toronto og fórum svo í bæinn að skoða CN tower
- við tókum fyrst flugvallarrútuna upp á flugvöll, strætó þaðan niður á lestarstöð, þar tókum við lest númer 1 og eftir töluverðan tíma skiptum við í lest númer 2 og enduðum á aðallestarstöðinni í miðborg Toronto, rétt hjá turninum.
- föttuðum að við höfðum verið þarna áður, þegar við skiptum um lest á leið okkar til Niagara Falls
- fórum í mjög svo langa röð til að komast upp í turninn
- nutum útsýnisins yfir borgina og keytpum dýrasta kók ferðarinnar
- þeir hugrökku stóðu stigu út á glergólfið og þeir allra hugrökkustu lögðust út á vírinn.... sem reyndar var stranglega bannað :S
- fórum á notalegan veitingastað sem sérhæfði sig í rifjasteikum
- áttum notalegan lokadag í Kanada, sumir við sundlaugarbakka á hótelinu aðrir fóru í búðir
- kvöddum Jamie og Cliff með söknuði á flugvellinum í Toronto
- flugum til Íslands og svalt loftið tók á móti okkur



» 6 hafa sagt sína skoðun

16.06.2009 08:35:57 / ragnhild

Gestir

Mikið hefur nú verið gaman hjá okkur síðan gestirnir komu. Strax fyrsta daginn voru þeir drifnir í skoðunaferð um bæinn. Vegna tímamismunar voru þau þó orðin þreytt ansi snemma. Rétt náðu að halda sér vakandi fram yfir átta og fóru svo að hátta. Að því tilefni ákváðum við heimilisfólkið að reyna að snúa sólarhringnum aðeins við líka - fara að sofa svona um 22 í stað 2. Gekk ágætlega en það var samt svakalega erfitt að vakna klukkan átta morguninn eftir en þá höfðu gestirnir verið á fótum í 2-3 tíma!!

Á föstudaginn var verslunar og skoðunarferð í miðbæinn þar sem við kíktum á Mallið Bay Center, Bastion Square, Kínahverfið og Inga keypti sér hring í mjóustu götu í heimi, fengum okkur ís í Market Square og fórum í Value Village. Það er búð sem selur notaðar vörur og gott ef Inga var ekki næstum búin að kaupa sér bolla stell!!

Næsta dag drifum við okkur til Salt spring Island. Þar er mikill og flottur markaður á hverjum laugardegi. Þangað verðum við að taka ferju og ákváðum við að vera tímanlega og taka ferjuna klukkan 10.00. Þegar við mættum að ferjustæðinu um 9.25 var löngu uppselt í tíuferjuna og við máttum því bíða á bryggjunni til klukkan 11.30. En til allrar lukku var markaður á bryggjunni þannig að þar var nóg að skoða. Held samt að það hafi ekki verið nein bollastell þar!!

Loks kom ferjan og við fórum um borð. Hittum eina skólavinkonu mína á markaðnum sem skoðaði herlegheitin með okkur. Gáfum henni gjöf frá Íslandi, lyklakippu með völubeini og sögðum henni að þetta væru mannabein frá Íslandi. Á markaðnum var hægt að fá alls kyns hluti og matvöru. Gott ef Inga keytpi sér ekki næstum því bollastell!!

Vegna fyrri reynslu þorðum við ekki annað en að drífa okkur að ferjustæðinu svo við fenngjum örugglega far heim þennan daginn. Þegar þangað kom fórum við aftast í ægilega langa röð. Svo kom ferjan og bílarnir fóru að tínast inn. Alltaf mjökuðumst við nær og nær. Þegar kom að því að við ættum að keyra um borð kom vörðurinn bara og sagði stans. Ferjan er full. Við máttum því bíða eftir næstu ferju sem var væntanleg tveimur tímum síðar. En við vorum þá alla vega fyrsti bíllinn inn í hana og vorum garenteruð með far heim. Og til allrar lukku þá var að sjálfsögðu markaður á bryggjunni þannig að við gátum nú aldeilsis stytt okkur stundir. En ekkert bollastell samt!!

Á sunnudaginn fórum við svo bara á ströndina og syntum í Theatis Lake. Bárum á okkur gommu af sólarvörn við lítinn fögnuð sumra í hópnum sem voru helst til foj yfir þessu kremastandi ;) Áttu rólegan og góðan dag og enduðum í smá verslunarleiðangri í Wall Mart og Superstore. Fór svo að reyna að klára að pakka en var alls ekki í gírnum. Náði þó að koma skikki á hluta þess sem pakka varð.

Í dag var svo ýmislegt brallað. Kíktum í heimsókn í sveitina til John þar sem hann er í miðjum heyskap. Fiðrildagarðurinn var skoðaður og blómagarðurinn Butchart Gardens. Rosalega flottur garður og í endann var að sjálfsögðu risa minjagripaverslun. Gott ef Inga var ekki næstum búin að kaupa sér bollastell!! Kíktum svo í Elk Lake og strákarnir gátu ekki á sér setið að fá sér sundsprett enda veðrið með eindæmum gott eins og það hefur verið undanfarnar vikur. Skelltu sér bara út í á brókinni og var þurrkað með stuttermabol á eftir. Ekki málið.

Er svo búin að vera á fullu að pakka í dag. Hreiðar og Úlfar ætla svo að skjótast með dótið yfir til Vancouver í fyrramálið. Þá verðum við með mun viðráðanlegra magn af dóti þegar við tökum ferjuna yfir á föstudaginn, bíllaus. Tökum nefnilega bílaleigubílana í Vancouver þar sem það munaði um $2200 dollurum að taka þá þar heldur en hér í Victoria. 

Framundan er svo heilmikill kleinubakstur og fleira til að nesta okkur upp fyrir ferðina. Ætlum líka að hitta fullt af góðu fólki á strönd einni annað kvöld og ætlum að taka strætó í bæinn þar sem bíllinn verður fjarri góðu gamni. Svo er það bara stórafmæli og útskrift og þá getum við lagt í hann í ferðina miklu hér þvert yfir Kananda. Jæja - þá er þurrkarinn búinn, best að rífa úr honum og drífa sig svo í bælið. 

» 8 hafa sagt sína skoðun

11.06.2009 06:52:30 / ragnhild

Og svo einn daginn...

Vorið 2007 setti ég mér takmark um hvar ég yrði á næstu fimm árum. Ég skrifaði það á blað sem ég pakkaði utan um stein og setti í hrúgu ásamt fjölda kvenna. Tveimur árum síðar er ég að útskrifast sem ljósmyndari úr erlendum skóla. Æskudraumurinn orðinn að veruleika - þetta gat hún stelpan. Fimm ára plani lokið á tveimur árum.  

Á mánudaginn skilaði ég inn lokaverkefninu, Portfoliunni. Ótrúlegur léttir og reyndar alveg ótrúlegt að þetta sé búið. Árið sem í haust virtist ætla að verða heil eilífð hefur liðið ótúrlega hratt, sérstaklega eftir áramót. Útlegðinni er nú senn að ljúka og skal nú haldið heim á ný.

Bless partýin byrjuð. Hittum Íslendingana okkar á þriðjudaginn í frábæru grilli. Yndislegt alveg hreint og mikið sem við eigum eftir að sakna þeirra allra. Í dag hittum við svo "playdate" vinkonur strákanna sem þeir hafa hitt í hverri viku frá áramótum. Fórum með í smá hiking og svo var pizzupartý. Mikið sem við eigum eftir að sakna þeirra líka. Í næstu viku verður svo enn eitt partýið með Íslendingum og fleirum. Svo þarf að kveðja hljómsveitina og og og..... Ótrúlegt hvað við höfum kynnst mörgum á þessu ári. Þann 18. júní er svo útskriftin sem verður eitt allsherjar skólafélaga bless partý.

En að léttara hjali. Klukkan ellefu þrjátíu að staðartíma verður brunað út á flugvöll að ná í hina tignu gesti sem munu nú loksins heiðra okkur með nærveru sinni. Gleði, gleði, gleði. 

» 7 hafa sagt sína skoðun

27.05.2009 02:35:28 / ragnhild

26. maí 2009

Mamma mín á afmæli í dag. Sú hefur nú aldeilis lifað tímanna tvenna enda fædd um miðbik síðustu aldar. En hún er eldhress og situr sjaldnast auðum höndum. Heyrði í henni í dag og sagði hún að næsta mál á dagskrá væri að þrífa fjáhúsin á Vaðbrekku!! Innilega til hamingju með daginn elsku mamma. 

En það eru fleiri sem eiga þennan dag. Melkorka er 16 ára í dag, bara að verða fullorðin sísvona. Hún er að flytja til landsins í haust og ætlar að skella sér í menntaskóla á Íslandi - held að MH verði fyrir valinu. Til lukku með daginn skvísa.

Emilía Grétu Bergrúnardóttir á einnig afmæli í dag. Gott ef hún er ekki bara orðin 11 ára.  Þar fer sko stúlka með bein í nefinu, lætur sér ekki muna um að redda sér þegar gamlar kalkaðar konur gleyma að sækja hana í fimleika  Til hamingju með daginn.

Síðast en ekki síst er þetta afmælisdagur Öldu Berglindar frænku minnar sem lést í vetur að völdum krabbameins. Hún hefði orðið 35 ára í dag. Hún var oft í sveit hjá okkur á Vaðbrekku í gamla daga og eyddi oftar en ekki afmælisdeginum hjá okkur. Þá var haldin tvölföld veisla fyrir hana og mömmu. Alda lét eftir sig 3 yndislegar dætur sem fengu allt of stuttan tíma með mömmu sinni. Maður á stundum erfitt með að skilja hvers vegna lífið getur verið svona ósanngjarnt. Eftir lifir þó minning um litla hressa hnátu sem var hjá okkur í sveitinni og yndislega móður. Sendi faðmlag til fjölskyldu Öldu og bið guð að blessa minningu hennar. 

» 4 hafa sagt sína skoðun

23.05.2009 08:28:13 / ragnhild

Nýstúdent

Í dag er hún Guðrún Sigurðardóttir frænka mín að útskrifast sem stúdent frá Framhaldsskólanum á Húsavík. Hún er að klára námið á þremur árum en hefur unnið mikið með þar sem hún hefur mestann tímann staðið á eigin fótum fjarri foreldrahúsum. 

Innilega til hamingju með daginn elsku Guðrún mín, ég er svo stolt af þér. Hlakka til að sjá myndir.

Nappaði þessari flottu mynd af henni á facebook ;)

» 2 hafa sagt sína skoðun

22.05.2009 08:11:42 / ragnhild

Og áfram skröltir hann þó...

Lífið er yndislegt hér á eyjunni þessa dagana. Í dag var 20 stiga hiti og virkilega notalegt. Ég notaði daginn til að taka myndir í action sport verkefnið mitt, þannig að nú á efni í þau síðustu tvö verkefni sem ég á eftir að skila fyrir utan lokaverkefnið. Endaði á því að nota bara blessuð börnin sem fyrirsætur enn einu sinni. Haldiði að drengirnir séu orðnir nokkuð þreyttir á þessu! Svo fór Egill reyndar líka í myndatöku í dag hjá skólasystur minni, en þeir bræður hafa verið fengnir til að pósa fyrir nokkra bekkjarfélaga mína í vetur. 

Ég hitti portfolio leiðbeinendur mína í vikunni. Sýndi þeim 12 myndir og 6 komust áfram, já það er sko ekkert elsku mamma í þessu!! Ég þarf því að taka nokkrar myndir í viðbót til að klára málið. Hreiðar er nú loksins búinn með verkefnið sem hann var að gera og er að hjálpa mér að finna módel. Erum að bíða eftir svörum frá bareiganda og þremur hljóðfæraleikurum - já, þetta er svona liðið sem hann þekkir. Ég hins vegar er að reyna að ná í einn bónda, hehe.

Það var frábært að fá gesti um síðustu helgi. Skelltum okkur í smá ferðalag með þeim hér á eyjunni sem var mjög gaman. Við fórum í pikknikk, duttum í lækinn, óðum í sjónum, náðum að villast, keyrðum á malarvegi, urðum bílveik, ókum fram á slys og ýmislegt fleira. Krakkarnir ná ótrúlega vel saman og léku sér rosa mikið á meðan við eldri spjölluðum út í það óendanlega og erum klárlega búin að bjarga heiminum, ekki Íslandi þó, það er of mikill pakki ;)

Svo er ég byrjuð að plana ferðalagið góða í júní. Það verður svo gaman hjá okkur. 

Egill Ari, Dögun, Brynjar Leó og Fönn hress á bryggjunni í Port Renfrew. 

» 3 hafa sagt sína skoðun

16.05.2009 06:47:29 / ragnhild

Sæll

Kominn miður maí eins og hendi væri veifað. Útlegð fjölskyldunnar er senn á enda. Á þriðjudaginn var síðasti formlegi skóladagurinn. Nú er bara að klára verkefni og koma öllu frá sér. Fjallið virðist óendanlegt en ég klíf það hægt og sígandi. Það var ekki til að bæta ástandið að ég var með flensu í þessari viku sem ég mátti að sjálfsögðu ekkert vera að því að vera með. Harkaði mér áfram á hálfu batteríi, fór í skólann, í myndatökur, með strákana í sund og vann myndir í tölvunni fram á nótt. En mér er að batna, leið svo miklu betur í dag.

Það var æðislegt hjá okkur mæðginunum í Tofino. Ég fór þangað í skólaferð og þar sem Hreiðar fékk verkefni í sömu vikunni tók ég þá bara með. Það gekk líka svona glimrandi. Drengirnir heilluðu alla skólafélaga mína upp úr skónum og eignuðust fullt af vinum. Þeir komu bara með í kennslustundirnar og skottuðust með mér meðan ég myndaði út um borg og bæ. Við gistum á farfuglaheimili en þar sem einn samnemandi minn er með hjálparhund sér við hlið þá mátti hún ekki vera í farfuglaheimilinu. Það var því leigt sumarhús við hliðina og þar fékk ég að vera með börnin líka. Ekkert smá flott hús og ég var í svítunni með strákana. Ekki var verra að við fengum alveg rosalega gott veður og spókuðum okkur á ströndinni eins og í sólarlöndum. 

Á morgun er von á góðum gestum af meginlandinu sem ætla að heiðra okkur eyjaskeggja með nærveru sinni um helgina. Mikil tilhlökkun ríkir á heimilinu enda fá þessir heiðursgestir þann titil að vera okkar fyrstu næturgestir síðan við fluttum á kanadíska grundu. Í næstu viku ætlar svo fyrrverandi samstarfskona Hreiðars að kíkja á okkur en hún er að koma hingað á hundasýningu. Hún gistir nú reyndar annars staðar en það verður gaman að hitta hana. Hún kenndi mér einmitt í Förðunarskóla No Name hér um árið ;)

Í byrjun júní er svo von á aðalgestum sumarsins en þá koma mamma, pabbi, Inga og Úlfar til okkar. Þetta er búið að vera í kortunum lengi en var bara endanlega ákveðið fyrir stuttu. Ég var því ekkert farin að leyfa mér að hlakka til fyrr en búið var að kaupa miðana. Ég er svo glöð að fá þau, alveg himinlifandi. Svo verður haldið í heljarinnar reisu yfir þvera Ameríku. Ætlum að kíkja á Klettafjöllin, ættingja í Manitoba og Niagara fossana svo eitthvað sé nefnt. Yndislegt alveg hreint.

Var að fatta að ég mun missa af nokkrum merkum tímamótum á næstunni. Útskrift Guðrúnar, og fermingum Rannveigar og Þorgilsar. Við verðum með ykkur í anda elskurnar - knús á ykkur öll. En einum merkum viðburði mun ég þó ekki missa af og það er fimmtugsafmæli Ingu syss - því hún verður hjá mér - JÍBBÍÍÍÍ!!!!



» 9 hafa sagt sína skoðun

28.04.2009 08:24:18 / ragnhild

28. apríl 2009

Öll síðasta vika fór í Multi Media námskeið og unnum við þrjár saman í hóp að miklu meistarastykki. Mun fara á spjöld kvikmyndasögunnar!! Ég skelli því kannski á netið þegar ég kemst í það næstu daga. Á laugardag var svo kosningavakan mikla. Aldrei fyrr hef ég fylgst með frá fyrstu tölum og þar til síðustu tölur voru lesnar upp. En maður var bara orðinn ansi þreyttur kl. 2.00 þegar Inga Þöll kom með lokaskammtinn í mínu kjördæmi. Ég er aftur orðin sátt við það sem ég kaus og hætt við að vilja breyta um skoðun. Nú er bara að bíða og vona að fari eitthvað að viti að gerast á Alþingi og liðið hætti að haga sér eins og smákrakkar. 

Á morgun vöknum við afar snemma því þá verður lagt í vettvangsferð með skólanum til Tofino sem er ein af aðalperlum Vancouvereyju. Þar sem Hreiðar fékk smá verkefni var ákveðið að ég taki strákana með mér. Við ætlum að gista þar efra í þrjár nætur og svo er bara að sjá hvernig mér tekst að draga þá með mér í gönguferðirnar og það sem við eigum að vera að gera þarna. Tvær skólasystur mínar hafa boðist til að hjálpa mér og passa, þannig að þetta verður bara fínt. 

Ég er búin að setja inn fullt af myndum í viðbót á barnalandið úr páskaferðinni. Hér eru nokkur "tóndæmi".

Íshokkíleikur heima hjá vinum strákanna Katie og Madeline  
Fjölskyldan á toppnum í Whistler
Í dýragarðinum í Seattle: Egill Ari, Brynjar Leó, Steinunn Vala og Magnea
Brynjar skoðar útsýnið úr Space Needle í Seattle. 

» 5 hafa sagt sína skoðun

22.04.2009 08:41:38 / ragnhild

Páskafríi löngu lokið

Áttum rosa gott páskafrí og fórum í skemmtilegt ferðalag á meginlandið. Gaman að koma til Whistler og sjá svæðið sem Vetrarólympíuleikarnir verða haldnir árið 2010 og til Seattle, heimabæ Gray's Anatomy ;) Ég var að setja inn fyrsta skammt af myndum úr ferðalaginu á barnalandið þannig að það er nóg að skoða fyrir áhugasama. 

Byrjaði annars ferðalagið á að kjósa. Hitti konsúlinn á 29. hæð í miðbæ Vancouver þann 9. apríl. Ég hef aldrei á ævinni verið jafn óákveðin og var í raun ekki búin að ákveða mig þegar ég kaus. Kaus nú samt. Frekar glatað að þurfa að kjósa svona snemma því ég er eiginlega búin að breyta um skoðun!! En hvað um það. Það verður fróðlegt að fylgjast með á kosninanótt á laugardaginn kemur - sem verður meira svona kosningasíðdegi og kvöld hjá mér.

Svo er það bara lokaspretturinn í skólanum. Fór á fyrsta fundinn vegna Portfoliunnar (lokaverkefnisins) og nú er svona nokkurn vegin ákveðið hvernig þetta á að líta út. Nú er bara að taka myndirnar í hana. 

» 4 hafa sagt sína skoðun

06.04.2009 06:15:59 / ragnhild

Páskafrí framundan

Þessi vika leið eins og hendi væri veifað. Fínasta vika ekki síst fyrir þær sakir að loksins kom vorið. Það fór að hlýna all hressilega á föstudaginn og blíðan er búin að leika við okkur eyjaskeggja um helgina. Á laugardaginn fórum við með strákana að vatni einu og lékum okkur í sandfjörunni sem þar er. Þetta vatn er bara rétt hjá okkur en við erum nýbúin að uppgötva það. Það er reyndar með þennan útivistastað eins og marga aðra hér í bæ að þar er fólk í hrönnum að viðra hundana sína. Maður mátti bara passa sig á að verða ekki undir of og tíðum, svo mikill var hamagangurinn. 

Í dag kíktum við svo í Fiðrildasafnið. Nágrannar okkar sögðu okkur frá því í gær og við ákváðum bara að drífa okkur. Ferlega gaman. Hitinn og rakinn var slíkur að það var engu líkara en maður væri kominn í regnskóga Suður Ameríku, eða þannig sko - hef náttúrulega ekki hugmynd um hvering er að vera í regnskógi. En alla vega - þarna var heitt og rakt. Fiðrildin voru æðisleg, flögruðu út um allt. Þarna voru líka flamingóar og skrautlegir fiskar og skemmtilegur fugl sem Brynjar kýs að kalla "skó-spætuna". Fuglinn sá hafði nefnilega svo gaman af að gogga í skóna hjá manni. 

Á milli þess sem ég hef notið veðurblíðunnar hef ég verið að gera verkefni. Fór í stúdíóið á laugardagskvöldið 18-21. Ekki hafa áhyggjur, ég var ekki ein á ferð og engin hætta. Við vorum að taka mynd af bjór fyrir auglýsingaljósmyndun. Það er nú meiri seremónían. Það þarf að pússa flöskuna alla voða fínt, sprauta svo einhverju dæmi á hana svo hún virðist vera ísköld með dropum á, sama á við um bjórkönnuna. Svo er að hella bjórnum í glasið alveg þangað til froðan er rétt við að vella útfyrir - þá á að taka myndina!! Þurftum í ofanálag að taka þetta á 4x5 filmu. Þannig að útkoman verður ljós eftir viku. Svo þurftum við að hella bjórnum í klósettið og byrja upp á nýtt að hella til að geta tekið aðra mynd. Verð að segja að mér fannst nú helv... illa farið með bjórinn þarna. En hann endar svo sem alltaf í klósettinu hvort sem er. 

Á fimmtudaginn er ég svo komin í páskafrí. Þá ætlum við í ferðalag sem hefst í Vancouver þar sem við hjónin ætlum að kjósa. Svo ætlum við að kíkja í Whistler og síðan til Seattle. Hlökkum mikið til.

Og að lokum fyrir afa Danna: Egill Ari er nú farinn að lesa svolítið, þetta er allt að koma. Verst að við erum ekki með Sjónvarpsdagskránna hér, þá gæti hann lesið fyrir þig næst þegar við hringjum, eins og Brynjar Leó gerði forðum.   

» 14 hafa sagt sína skoðun

30.03.2009 07:21:21 / ragnhild

Yndisleg helgi

Mikið var nú gott að hvíla sig eftir langar og strangar tískuvikur. Á morgun byrjar svo ballið aftur en þá er fyrsti tíminn í Brúðkaupsljósmyndun. Það er ekki seinna vænna þar sem nú þegar er búið að ráða mig í tvær slíkar myndatökur í sumar :)

Helgin var tekin rólega. Ég svaf frá mér allt vit á laugardagsmorguninn og fór svo að læra. Hreiðar fór með drengina til vinar okkar til að hjálpa við að setja saman nýja grillið hans. Um kvöldið fengum við svo afar góða konu í mat og við spjölluðum alveg út í eitt. Hún er Vestur-Íslendingur sem býr í Winnipeg en er hér í heimsókn hjá dóttur sinni. Hún þekkir nokkra af Héraði og hefur komið þrisvar sinnum til Íslands. Þegar hún fór fyrst að leita uppi ættingja á Íslandi var henni komið í samband við Hrafnkel A. Jónsson sem kom henni á réttan kjöl í leitinni. M.a. fóru Hrafnkell og pabbi með hana í ferð á slóðir forfeðra hennar á Brú fyrir nokkrum árum. 

Ég sagði henni heilmikið af Hrafnkeli í heimsókninni og fannst henni mjög merkilegt að heyra hversu mörgu hann hafði tengst og áorkað í gegnum tíðina. Ég sagði henni frá verkalýðsmanninum, samfrímúraranum, fræðimanninum, pólitíkusnum, flokkaflakkaranum og fleiru. Hún varð helst til hissa þegar ég sagði henni frá formanni íþróttafélagsins, spurði hvort Hrafnkell hefði verið íþróttamaður. Ég sagði svo ekki vera, þetta hefði hann gert af hugsjón fyrir unga fólkið. Ég gaf henni að sjálfsögðu eintak af bókinni Þræðir og hún hlakkaði mikið til að lesa.

Í morgun svaf ég líka frameftir fyrir allan peninginn!! Sólin skein glatt í dag og við boðin í tvö matarboð. Yndislegt alveg hreint og ekki frá því að við séum töluvert södd eftir daginn. Náði meira að segja að gera eitt verkefni í leiðinni. Fékk að taka mynd af húsi annarar fjölskyldunnar fyrir Arkitektúr.   

» 3 hafa sagt sína skoðun

27.03.2009 08:01:15 / ragnhild

Örstutt

Tískuljósmyndakúrsinn klárast á morgun með krítík hjá öllum hópnum. Á hverjum degi höfum við fengið svona "one on one" krítík með kennaranum en í dag þurfti ég svo að velja 3 myndir af þeim 800 sem ég hef tekið á undanförnum tveimur vikum. Ætla mætti að það væri mikið að velja úr, en tískuljósmyndun er snúnari en maður heldur. Ekki má skyggja á tískuna, þ.e. fötin, skartgripi og þess háttar. Limir, þ.e. hendur og fætur geta ekki verið hvernig sem er. Komst að því að lokum að ef maður getur ekki stillt höndum og fótum rétt þá er gott að klippa það bara af myndinni eða setja hendurnar fyrir aftan bak á módelunum!! Hálsinn er mjög mikilvægur þegar kemur að tísku og svo framvegis. Þannig að það var oftast hægt að finna eitthvað að hverri einustu mynd!!

En alla vega, í dag veit ég mun meira um tísku og tískuljósmyndun en ég gerði fyrir hálfum mánuði síðan. Ég læt að þessu sinni fylgja með mynd af einu myndarlegu karlmódeli sem ég myndaði í vikunni.


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 17